Skilmálar

Almennt

Seljandi er Viðskiptaþróun ehf, kt. 470596-2019, Skeljagrandi 17, 107 Reykjavík. Kaupandi er skráður kaupandi á reikningi. Eftirfarandi skilmálar gilda um viðskipti seljanda og kaupanda svo og um notkun á vefversluninni olivita.is. Um skilmálana gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003 og eftir atvikum lög um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000. Upplýsingar á vefnum eru með fyrirvara um prentvillur.

  1. Skilafrestur og endurgreiðslu­réttur.

Skilafrestur er 30 dagar, þ.e. hafi kaupandi keypt vöruna í gegnum olivita.is hefur hann 30 daga til að hætta við kaupin, að því tilskildu að henni sé skilað strax í óuppteknum upprunalegum umbúðum, með órofnu innsigli. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum móttakanda. Kvittun fyrir kaupunum þarf að fylgja með ef endurgreiðsla á að eiga sér stað. Endurgreiðsla er framkvæmd ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að seljandi hefur móttekið vöru aftur. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Upphæð endurgreiðslu skal vera það verð sem kemur fram á pöntunarstaðfes­tingu.

  1. Pöntun

Þegar kaupandi hefur staðfest pöntun á vefsvæðinu olivita.is telst hún bindandi. Seljandi sendir kaupanda pöntunarstaðfes­tingu um leið og pöntun er skráð, að því gefnu að kaupandi hafi gefið upp rétt netfang sitt. Kaupandi skal kanna sérstaklega hvort pöntunarstaðfesting seljanda er í samræmi við pöntun hans.

  1. Upplýsingar um vöru

Upplýsingar um vörur og eiginleika þeirra eru á vefsíðum olivita.is og settar fram eftir bestu vitund seljanda. Varan er ekki leyfisskyld en er skráð hjá Matvælastofnun sem fæðubótarefni. Í framsetningu upplýsinga gerir seljandi fyrirvara um bilanir, birtingar- og/eða innsláttarvillur í myndum og texta. Sé vara uppseld áskilur seljandi sér rétt til að fella niður pöntun kaupanda að hluta til eða í heild. Kaupanda skal ávallt tilkynnt um slíkt og boðið að breyta pöntuninni eða samþykkja niðurfellingu.

  1. Verð

Það verð gildir er fram kemur á pöntunarstaðfes­tingu kaupanda hverju sinni. Það er í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti. Heildarkostnaður við kaup á vöru er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega.

  1. Greiðsla

Kaupandi getur innt af hendi greiðslu með greiðslukorti, bankamillifærslu eða staðgreiðslu við afhendingu. Þegar kaupandi velur að greiða vöruna með greiðslukorti eða skuldfærslu er upphæð skuldfærð þegar varan er pöntuð. Ef greiðsla berst ekki áskilur seljandi sér rétt til að fella niður pöntunina án frekari tilkynninga. Velji kaupandi að greiða með bankamillifærslu eru vörur teknar frá þar til greiðsla berst til seljanda. Vörur eru geymdar á lager í 7 daga. Ef millifærsla berst ekki innan þess tíma er pöntun felld niður án frekari tilkynninga.

  1. Afhending á vöru

Seljandi leitast við að afhenda vöru innan 1–3 daga frá því pöntun er móttekin og fer eftir afhendingarleið. Seljandi afhendir aðeins vörur innanlands, með Póstinum, eða öðrum umsömdum flutningsaðila. Verði seinkun á afhendingu vörunnar sendir seljandi kaupanda tilkynningu með upplýsingum um hvenær unnt verði að afhenda vöruna. Ef gengið er frá greiðslu gegnum heimasíðuna olivita.is og óskað eftir því að sækja þá má seljandi krefjast framvísunar skilríkja þess sem sækir við afhendingu.

  1. Móttaka vöru

Kaupandi skal við móttöku vöru athuga án tafar og innan eðlilegra tímamarka hvort varan sé ógölluð og í samræmi við pöntunarstaðfes­tingu og vörulýsingu. Þá skal kaupandi kanna við móttöku hvort varan hafi skemmst við flutning.

  1. Galli

Ef vara er gölluð skal seljandi bjóða kaupanda nýja vöru eða afturköllun kaupa. Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.

  1. Ábyrgð

Ábyrgð seljanda er í samræmi við það sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð er ekki staðfest nema pöntunarstaðfes­tingu og kvittun fyrir kaupum sé framvísað.

  1. Persónuup­plýsingar

Viðskiptaþróun meðhöndla persónuupplýsingar kaupanda vegna notkunar á vefsvæðinu olivita.is í samræmi við gildandi lög og reglur um meðferð persónulegra upplýsinga. Kaupandi skuldbindur sig til að gefa réttar upplýsingar við kaupin, svo sem heimilisfang og netfang.

  1. Höfundarréttur og vörumerki.

Allt efni á vefsvæðinu olivita.is er eign seljanda. Olivita er einkaleyfisvernduð vara og skráð vörumerki og efni tengt henni má ekki nota í tengslum við neina vöru eða þjónustu án skriflegs leyfis seljanda.

  1. Almennt

Viðskiptaþróun áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og breyta verði eða hætta að bjóða upp á vöru eða þjónustu fyrirvaralaust. Verði seljandi fyrir óviðráðanlegu ytra atviki (”force majeure”), svo sem eldgosi, jarðskjálfta, verkfalli eða því um líku, er seljanda heimilt að fresta efndum sínum eða falla frá kaupunum.