Olivita

Olivita er samsett úr virkum náttúrulegum efnum sem eru sköpuð af náttúrunni og þróuð í rannsóknum vísindamanna við Háskólann í Tromsö í Noregi.

Það besta frá tveimur heimum

Eskimóar og fólk í Miðjarðarhafslöndunum þjást síður af hjartasjúkdómum og krabbameini en fólk á Norðurlöndunum og annars staðar í Evrópu. Það eru ýmsar ástæður fyrir þessu, en mataræði er afgerandi áhrifaþáttur í vörn gegn þessum sjúkdómum.

Olivita sameinar það besta úr mataræði eskimóa og miðjarðarhafsbúa með blöndun hreinsaðs selalýsis og kaldpressaðrar ólífuolíu.

Verkunin

Sérstök samsetning selalýsis og ólífuolíu gerir Olivita virka vörn gegn hjarta- og æðavandamálum, blóðtappa, heilaslagi, psoriasis, liðagigt og ýmsum sjálfsofnæmissjúkdómum sem tengjast bólguviðbrögðum. Bæði ólífuolía og selalýsi innihalda efni með mjög góða bólguhemjandi eiginleika. Eitt af þeim, oleochantal, hefur einnig sýnt sig að búa yfir Ibux/Ibufen-líkum verkjastillandi eiginleikum. Þetta er þekkt og hefur meðal annars komið fram í hinu virta tímariti Nature. Í dag vitum við að margir sjúkdómar tengjast bólguviðbrögðum.

Blandan

Olivita er eina varan á markaðinum sem er blanda af selalýsi og ólífuolíu. Heilsufarsáhrifin eru samverkun þessara tveggja náttúrulegu olíuafurða að þakka. Auk annarra fitusýra inniheldur selalýsi meira magn hinnar heilsusamlegu DPA fitusýru en fiskilýsi og aðrar omega-3 afurðir. Ólífuolían er mjög rík af andoxunarefnum og bólgueyðandi innihaldsefnum. Auk þessa er D-vítamíni bætt í blönduna, en íbúar norðurslóða fá fæstir nóg D-vítamín.

Ráðlagðar skammtastærðir

Olivita er til sem fljótandi olía og í belgjum. Allar vörurnar eru með viðbættu D-vítamíni. Olían er til með sínu náttúrulega bragði (án bragðefnis) og með náttúrulegri sítrónuolíu.
Fyrir fullorðna er mælt með 15 millilítrum (2 matskeiðum) á dag, en fyrir börn er ráðlagður skammtur 7,5 millilítrar (1 matskeið) á dag.
Ráðlagður skammtur af belgjum er allt að 6 á dag fyrir fullorðna, fyrir börn undir 10 ára aldri er mælt með fljótandi olíu.
Sé olían geymd í kæli (undir 4 gráðum á Celsíus) getur hún orðið skýjuð og þykkfljótandi. Þetta er eðlilegt vegna ólífuolíunnar og hverfur fljótt við stofuhita.

Vörn gegn þránun

Olivita inniheldur sterk andoxunarefni í ólífuolíunni sem vernda omega-3 fitusýrurnar gegn þránun þegar þær berast í líkamann. Til að ná fram jákvæðum áhrifum omega-3 fitusýranna er afgerandi að hindra þránun þeirra. Lýsi er hreinsað samkvæmt mjög ströngum stöðlum. Þar tapast einnig andoxunarefnin, sem verja omega-3 fitusýrurnar gegn þránun bæði utan og í líkamanum. Aðrar omega-3 vörur á markaðinum þrána mun meira en Olivita, þegar þær koma inn í líkamann.

Verslun

Þróun Olivita

Þróun Olivita er byggð á þekkingu frá meira en 20 ára rannsóknum, með samtals um 1200 þáttakendum, prófessoranna Bjarne Østerud og Edel O. Elvevoll við Háskólann í Tromsö í Noregi.Innblásturinn að rannsóknum og þróun Olivita fékk Bjarne út frá eigin lífshagsmunum. Erfðatilhneiging til hjarta-og æðasjúkdóms í fjölskyldunni olli því að hann hóf leit að fæðubótarefni sem gæti komið í veg fyrir ótímabært andlát um aldur fram.

Hann þróaði Olivita – blöndu omega-3 fitusýra, andoxunarefna og efnasambanda sem fyrirbyggja bólgutengda sjúkdóma eins og gigt, exem og æðakölkun, en hún er einmitt bólgusjúkdómur.

Samsetning Olivita úr tveimur ólíkum náttúrulegum olíum gefur hin einstöku heilsuáhrif Olivita. Vegna almenns skorts á D-vítamíni hjá íbúum norðurslóða, sem meðal annars er talið geta haft áhrif á þunglyndi, blóðþrýsting, sjálfsofnæmissjúkdóma, ristilkrabba og beinþynningu, er einnig sett D-vítamín í Olivita.

Það má með sanni segja að Olivita sé skapað af náttúrunni og þróað í rannsóknum. Olivita er eina fæðubótarefnið sem sameinar selalýsi og ólífuolíu og er því einkaleyfisverndað.

Þú getur lesið alla söguna um þróun Olivita hér á olivita.com. Á síðunni er flettigluggi sem leyfir val á ýmsum tungumálum, meðal annars íslensku.

Rannsóknirnar sem leiddu til þróunar Olivita voru bæði gerðar á sjávarfangi og ýmsum gerðum lýsis: